Auglýsing

Fleyg orđ

Mu mu mu mu 4.U !

Könnun

Hvađ ćtlarđu ađ gera eftir útskrift?

Haustiđ

04. september 2007 klukkan 13:58
Halló, halló.
Nú, þar sem haustið er nú komið væri nú gaman að fá að heyra hvar allir eru, hvert planið er fyrir veturinn og annað skemmtilegt. Það voru flestir svo óákveðnir í vor en nú hljóta flestir að vera byrjaðir að gera e-ð, læra e-ð eða eru jafnel farnir e-ð út í heim.
Hef ekki hugmynd um hvort að einhver skoði þessa síðu lengur en það er vonandi að sem flestir kommenti.
..,-Anna H..,-

Gjöf fyrir Sigrúnu...

22. maí 2007 klukkan 08:35
hæhæ, ég keypti Bratwürst pylsurnar í gær handa Sigrúnu og gerði dauðaleit að bók um banana en fann ekki neitt (spurði meira að segja á öllum stöðum) þannig að hvað á ég að reyna að finna í staðinn??
Leitaði líka eftir einhverju bananadóti í leiðinni en sá ekkert, en get samt alveg leitað meira af því ef ykkur lýst vel á það, t.d. Banana-bangsa eða e-ð.
Allavega endilega koma með hugmyndir eða samþykkja þessa :)
kv. Anna A

Óvissuferđ

21. maí 2007 klukkan 21:41
Óvissuferðin verður farin þann 8. júní nk. Okkar bekkur var með langlélegustu mætinguna en þeir sem fara verða bara að skemmta sér fyrir alla hina.
Farið verður frá MA planinu kl. 15:30 og kostar 3500 kr. Allt er innifalið nema morgunmatur á laugardagsmorgun. Það sem taka þarf með er:
   -tjald (gott að para sig saman)
   -svefnpoki, dýna og annar útilegubúnaður
   -gleðigjafi
   -morgunmatur

Þið verðið að borga fyrir vikulok, það er nauðsynlegt !

Upphæð: 3500 kr
Reikningur: 1176-26-60616
Kt. 071086-3489
Skýring: nafn-óvissuferð

-Kristín

Dimmisio undirbúningur

21. maí 2007 klukkan 15:00

Mér finnst þetta vera snilldarhugmynd hjá Kristínu og held að hún eigi eftir að gera þetta mjög flott. Þannig að nú þurfa bara allir að senda henni línu í dag svo hún geti gert þetta. Hinar gjafirnar eru líka ansi frumlegar flestar og kennararnir eiga trúlegast ekki eftir að verða fyrir vonbrigðum.

Minni ykkur svo á að senda mér reikningsnr. ykkar og hvað þið hafið keypt um leið og þið eruð búin að því, helst í dag. Svo að við sjáum hversu mikinn pening við eigum eftir. Ekki senda mér reikning eftir dimissio því það yrði pínu vesen að fara að rukka alla aftur í próftíð. Við vitum þó ekki enn hvort við þurfum að borga fyrir bílstjórann en allavega þurfum við að borga bensín. Nú er um 20.000 kr eftir til að eyða í gjafir og skreytingar.

Reddlistinn er enn ekki á enda. Hver getur reddað græjum og góðri tónlist?  Þetta þurfa ekki að vera einhverjar rosa græjur, heldur bara e-ð sem við heyrum í á pallinum.

Síðan er það morgundagurinn, hvenær eigum við að hittast og skreyta vagninn, pakka inn gjöfum í sellófan o.fl.? Allir að kommenta. Ef að vagninn verður kominn seinnipartinn þá held ég að það yrði sniðugt að byrja nógu snemma.

Ég veit ekki betur en að Þorsteinn og Einar ætli að fara út í skóg í dag, þannig að ég skal reyna að redda vír til að festa þetta á, sellófani, borðum fyrir hárið og rauðum kinnalit. Við þurfum samt eitthvað meira en trjágreinar til að skreyta vagninn (t.d. til að merkja hann 4.U)  og það væri gott ef fólk er með hugmyndir að kommenta því kaupa þarf það fyrir kvöldmat á morgun. Planið er síðan að stelpurnar verði með fastafléttur og væri ágætt að vita hverjar okkar kunna að gera svoleiðis eða vita um einhvern sem myndi geta sett þær í okkur?

Sigrún Ben ætlar svo að senda okkur póst í kvöld um hvenær við þurfum að mæta á morgun. Hún var að tala um að líklegast þyrftum við að mæta kl. 9 út af því að við erum með heita rétti.
Nóg í bili,
Anna Harðar

Gjafir fyrir kennara

21. maí 2007 klukkan 09:30
Nú hafa flestir fengið hlutverk í sambandi við gjafir handa kennurum og því þarf að redda í DAG. Enn eigum við eftir að finna gjöf handa Jóhanni og e-ð smá meira handa Þóri.

Ég er með hugmynd um gjöf handa Jóhanni. Hvað ef við öll skrifum til hans eina setningu, s.s Ég man þegar.. eða eitthvað annað sem tengir ykkur við hann. Svo er hægt að gera litla bók úr því með myndum af bekknum. Kannski svolítið egó ? Þetta allavega væri persónuleg gjöf frá okkur til hans.
Spurning um að gera svipað handa Þóri ?

Hvernig líst ykkur á ?
Ef þið eruð til, sendið til mín núna STRAX (annaðhvort hér í komment eða á ma mailið mitt (22krg@ma.is)) línu. Eitthva smá til Jóhanns og eitthvað smá til Þóris.

-Kristín að reyna að fá hugmyndir

Hátiđarkvöldverđur

18. maí 2007 klukkan 14:36
Við Anna keppumst um að drita hér niður færslum og svo erum við líklega þær einu sem lesum þetta..

En krakkar, ég þarf að vera búin að fá hjá ÖLLUM staðfestingu á hve marga þið ætlið að taka með í hátíðarkvöldverðinn þann 17. júní fyrir þriðjudaginn. Þetta er MJÖG mikilvægt atriði svo þið fáið nú örugglega sæti fyrir alla fjölskyldumeðlimi.

Miðaverð er 5500 kr. fyrir mat og ball. Miðaverð eingöngu á ballið er 2500 kr. Það er EKKI hægt að borga bara matinn. So sorry. Krakkar á aldrinum 7-12 ára borga hálft verð og 0-6 fá frítt. Einnig þarf að taka sérstaklega fram allar séróskir, s.s. ofnæmi.

Hafið samband sem fyrst eða skrifið þetta niður í komment.

-Kristín "ekkineittmeira"

Dimissio

18. maí 2007 klukkan 14:15

Allt lítur út fyrir það að við séum búin að redda bolunum fyrir stelpurnar, það rétt slapp fyrir horn. Kristrún ætlar að ná í 3 í Rvk. Þannig að nú þurfa bara strákarnir að redda sínum.
Annars eru búningarnir eiginlega alveg tilbúnir.

Þar sem að við bekkurinn eigum eftir að hittast mjög lítið í skólanum á næstunni (snökt, snökt), þá er hérna svona smá plan:

Sunnudagur: Mæta til Úllu kl. 20:00. Klára að ákveða hvað á að gefa kennurum. Kennararnir sem við gefum eru Þórir, Jóhann, Billó, Siggi Bjarklind, Níels, Sonja, Sigrún, Sigga Steinbjörns, Hildur Hauks og Kristín Sigfúss. Svo hvet ég alla til leggja höfuðið í bleyti yfir helgina og fá sniðuga hugmynd sem tengir okkur á einhvern hátt við hvern kennara. Við vorum komin með fyrir Þóri, Jóhann og Sigga. Þurfum líka að ræða vagnaskreytingar og atriði.

Mánudagur: Hittast einhvern tímann eftir skóla, þurfum að ákveða það á sunnudag. Kaupa dót til að skreyta vagninn og annað sem þarf að redda. Byrja svo að FÖNDRA.  Einhverjir fara í að búa til atriði fyrir bekkinn til að sýna á miðvikudeginum í Kvosinni.

Þriðjudagur (Sparifatadagurinn): Allir að mæta með heitu réttina í frímó, síðan verður söngsalur og e-ð skemmtilegt. Hittast um kvöldið og skreyta vagninn. Ganga frá gjöfum og æfa atriðið.

Gott plan????????

Sjáumst þar,
Anna THE Hard

P.S. Endilega skoðið http://www.ma.is/myndir/olymp07/ myndir frá Litlu Ólympíuleikunum

Bolir fyrir dimission

18. maí 2007 klukkan 11:17
Þá er það statusinn á bolunum. Það komu ekki nema 9 bolir í Hagkaup í þessum stærðum:

XL: 2
L: 4
M: 2
S: 1

Fyrir eigum við einn M bol, svo samtals eru þetta 10 bolir. Enn vantar einn bol -og stærðirnir eru e-ð á skjön við það sem við vildum (of fáir S bolir). Það ætti samt ekki að vera svo nauið, þetta eru litlar stærðir og flestir ættu að geta tekið stærðina fyrir ofan. En sjáum til.
Möguleikarnir núna eru þessir:

1. Taka þessa boli, láta þessar stærðir ganga  og redda sér einum örðum bol. Það eru til í Hagkaup svipaðir bolir (reyndar 500 kr dýrari) og aðrir á sama verðir sem reyndar eru aðeins kremaðri og með kvartermar.

2. Kaupa boli að sunnan, ef þeir eru til þar.

3. Missa vitið og hætta við þetta allt.

Þriðji möguleikinn er auðvitað ekki í boði !

Ef þið viljið breyta stærðinni ykkar þá kommentið það hér (eða hringið í mig). Það væri mjög gott ef við gætum notað þessa boli sem komnir eru og fengið þennan eina sem vantar að sunnan.

-Kristín sem snýst í hringi

Litlu Ólympíuleikarnir

14. maí 2007 klukkan 14:25
Til hamingju með glæsilegan dag krakkar. Þetta tókst bara mjög vel upp og var gífurlega gaman. Vei vei. Í tilefni þess ber að fagna og við eigum pantað borð á Greifanum kl. 19.00.
Allir að mæta sætir og fínir og svo höfum við gaman fram eftir kvöldi.

-Kristín obbobobb

Sunna tvítug

17. mars 2007 klukkan 20:22
Sunna
Öll eruð þið að verða stór.. einsog ég.
Til hamingju með daginn Sunna sæta !